„Við notum hágæðahráefni og gerum hlutina frá grunni; við notum annars gjarnan íslensk hráefni og við viljum að varan sem fer út frá okkur sé eitthvað sem við erum stoltar af og okkur sjálfum þykir vera góð,“ segir Sylvía Haukdal, annar eigenda hjá 17 sortum. „Við erum með brúðarterturáðgjöf þannig að við mælum með að tilvonandi brúðhjón komi og setjist niður með okkur og fari yfir þetta og fái svo smakk með sér heim. Við einblínum á að gera þetta persónulegt fyrir þau sem eru að panta kökuna og að þau séu að fá eitthvað sem höfðar til þeirra.“

Sylvía segir að tilvonandi brúðhjón séu spurð út í matinn í veislunni. „Ef það verður þungur matur í boði, eins og steik, þá ráðleggjum við fólki að hafa léttari fyllingu í eftirrétt, svo sem lemoncurd eða ljósari botna af því að súkkulaðitertan er þyngri.“
17 sortir …














Athugasemdir