Brúðarkjólar oft eins og listaverk

Brúð­ar­kjóll­inn er kafli út af fyrir sig þegar kemur að brúð­kaupum. Það þarf að vanda valið. Til­von­andi brúðir kjósa sumar að láta sér­sauma fyrir sig kjól, aðrar kaupa til­bú­inn kjól og enn aðrar kjósa að klæð­ast kjól móður sinnar eða jafn­vel ömmu. Kjóla­meist­arar veita ráð um hvað þurfi að hafa í huga við val á kjól.

Brúðarkjólar oft eins og listaverk
Blúnda Brúð­ar­kjóll frá Bloom. (Mynd: Eygló Gísla­dóttir.)

Eyrún Birna Jóns­dóttir er kjóla­klæð­skeri og brúð­ar­kjóla­hönn­uður. Hún hefur hannað línu með til­búnum brúð­ar­kjólum, sem hún saumar líka, undir merk­inu Bloom by Eyrún Birna. Varðandi nafnið, Bloom, segir hún: „Ég vildi að nafnið gæfi til kynna hvers kyns kjólar þetta eru. Bloom þýðir nátt­úr­lega að „blómstra“ og á brúð­kaups­dag­inn eiga konur einmitt að blómstra og líta eins vel út og mögu­legt er og líða líka þannig. Ég legg sér­staka áherslu á að kjól­arnir séu þægi­legir og klæði­legir þannig að öllum líði vel í þeim.“

Hún er með ákveðna línu í boði, ákveðin ein­tök, og er hægt að panta hjá henni í mátun og síðan saumar hún alltaf eftir málum hverrar konu svo að kjóll­inn passi sem best hverri og einni.

Eyrún Birna segir að kjól­arnir séu svo­lítið bóhemískir. „Áherslan er að þeir séu flæð­andi, klæði­legir og blúndur eru sér­stakt áhuga­mál hjá mér og finnst mér vera mik­il­vægt að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár