Eyrún Birna Jónsdóttir er kjólaklæðskeri og brúðarkjólahönnuður. Hún hefur hannað línu með tilbúnum brúðarkjólum, sem hún saumar líka, undir merkinu Bloom by Eyrún Birna. Varðandi nafnið, Bloom, segir hún: „Ég vildi að nafnið gæfi til kynna hvers kyns kjólar þetta eru. Bloom þýðir náttúrlega að „blómstra“ og á brúðkaupsdaginn eiga konur einmitt að blómstra og líta eins vel út og mögulegt er og líða líka þannig. Ég legg sérstaka áherslu á að kjólarnir séu þægilegir og klæðilegir þannig að öllum líði vel í þeim.“
Hún er með ákveðna línu í boði, ákveðin eintök, og er hægt að panta hjá henni í mátun og síðan saumar hún alltaf eftir málum hverrar konu svo að kjóllinn passi sem best hverri og einni.
Eyrún Birna segir að kjólarnir séu svolítið bóhemískir. „Áherslan er að þeir séu flæðandi, klæðilegir og blúndur eru sérstakt áhugamál hjá mér og finnst mér vera mikilvægt að …














Athugasemdir