Sr. Sveinn Valgeirsson er sóknarprestur Dómkirkjunnar og þau eru mörg pörin sem hann hefur gefið í hjónaband og um brúðkaupið sjálft segir hann: „Þetta er náttúrlega löggerningur þannig að hjónaefni þurfa að hafa samband við Þjóðskrá og sýslumann og láta gera könnunarvottorðið; þetta er ekki löglegt nema að þeir hlutir séu allir í lagi og það verður að vera búið að undirbúa þá áður.“
Í könnunarvottorði segir meðal annars: „Hjónaefni ábyrgjast með undirritun sinni að ofangreindar upplýsingar eru réttar og lýsa því yfir að viðlögðum drengskap að þau viti ekki um tálma á fyrirhuguðum hjúskap skv. hjúskaparlögum nr. 31/1993.“ Einnig segir: „Undirritaðir svaramenn hjónaefna ábyrgjast hér með að enginn lagatálmi sbr. II. og III. kafla laga nr. 31/1993 er á fyrirhuguðum hjúskap.“
Á síðu Stjórnarráðs Íslands kemur fram: „Könnun hjónavígsluskilyrða mun einungis fara fram hjá sýslumanni, frá og með 1 september næstkomandi. Könnun hjónavígsluskilyrða, áður en hjónavígsla fer …














Athugasemdir