Hjónaband er sameiginlegt verkefni

Ástin leiðir fólk í hjóna­band. Á fyrri tímum hófu hjón almennt búskap eftir að hafa ját­ast hvort öðru frammi fyrir Guði og mönnum. Í dag eru nýgift hjón oft reynslu­mikil eftir jafn­vel margra ára búskap, þegar þau ganga í hjóna­band. Að ýmsu er þó að huga, segir sókn­ar­prestur í Dóm­kirkj­unni.

Hjónaband er sameiginlegt verkefni
Sr. Sveinn Val­geirs­son „Einhver hélt því fram að þegar fólk gengur í hjóna­band þá sé það yfir­lýs­ing um að þau vilji verða eitt; ekki að þau eigi að verða eins. Ákveðinn kær­leikur felst líka í því að við­kom­andi gefi þeim sem hann elskar kost á að vaxa líka á sínum for­sendum.“ Mynd: Golli

Sr. Sveinn Val­geirs­son er sókn­ar­prestur Dóm­kirkj­unnar og þau eru mörg pörin sem hann hefur gefið í hjóna­band og um brúð­kaupið sjálft segir hann: „Þetta er nátt­úr­lega lög­gern­ingur þannig að hjóna­efni þurfa að hafa sam­band við Þjóðskrá og sýslu­mann og láta gera könn­un­ar­vott­orðið; þetta er ekki lög­legt nema að þeir hlutir séu allir í lagi og það verður að vera búið að und­ir­búa þá áður.“

Í könn­un­ar­vott­orði segir meðal ann­ars: „Hjónaefni ábyrgj­ast með und­ir­ritun sinni að ofan­greindar upplýsingar eru réttar og lýsa því yfir að viðlögðum dreng­skap að þau viti ekki um tálma á fyr­ir­hug­uðum hjúskap skv. hjúskap­arlögum nr. 31/1993.“ Einnig segir: „Und­ir­rit­aðir svara­menn hjónaefna ábyrgj­ast hér með að eng­inn lagatálmi sbr. II. og III. kafla laga nr. 31/1993 er á fyr­ir­hug­uðum hjúskap.“

Á síðu Stjórn­ar­ráðs Íslands kemur fram: „Könnun hjóna­vígslu­skil­yrða mun ein­ungis fara fram hjá sýslu­manni, frá og með 1 sept­em­ber næst­kom­andi. Könnun hjóna­vígslu­skil­yrða, áður en hjóna­vígsla fer …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár