Ráð góðs gestgjafa

Ást­hildur Emma Ást­valds­dóttir hlaut mikið lof á sam­fé­lags­miðlum þegar hún deildi mynd­bandi sem sýndi hvernig gest­gjafar geta und­ir­búið mat­ar­boð með skil­virkum hætti. Hér deilir hún þremur góðum ráðum sem hafa reynst henni vel.

Ráð góðs gestgjafa

Góður und­ir­bún­ingur leggur grunn­inn að góðu mat­ar­boði! Með góðum und­ir­bún­ingi færð þú tæki­færi til þess að vera góður og yfir­veg­aður gest­gjafi sem hefur nægan tíma fyrir gest­ina, getur tekið þátt í spjalli og notið kvölds­ins.

Það er óþægi­legt að fá boð í mat og líða hálf­illa bróð­ur­part kvölds­ins vegna þess að maður finnur mikið fyrir stressi gest­gjafans. Sem gesti líður manni oft illa yfir öllu þessu ómaki. Þá til dæmis þegar gest­gjaf­inn er alltaf á fullu í eld­hús­inu, nær ekki að taka þátt í sam­ræðum eða hefur miklar áhyggjur af því að mat­ur­inn sé nógu góður.

Matarboð eiga að snú­ast um að hitta fólkið sitt og eiga góða stund saman.

Leggja á borð kvöldið áður

Með því að leggja á borðið með góðum fyr­ir­vara, til dæmis kvöld­inu áður eða morg­un­inn fyrir mat­ar­boðið, þá nærðu að spara þér hell­ings vinnu. Þá er hægt að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár