Verslunin Loforð nýtur mikilla vinsælda meðal tilvonandi brúðhjóna. Þar er bæði hægt að fá brúðarkjóla og leigja herraföt. Eigendur Loforðs eru kjólameistarinn Ásdís Gunnarsdóttir og Íris Hanna Hreinsdóttir, sem áður rak verslunina Brúðhjón, afsprengi Brúðarkjólaleigu Katrínar.
Valdeflandi að finna kjólinn
Það er gott að byrja að huga að brúðarkjólakaupum ári fyrir stóra daginn vegna þess að framleiðslan á kjólunum tekur yfirleitt sex til níu mánuði. Þær brúðir sem hyggjast gifta sig á sumrin bóka tíma í mátun í október eða nóvember árið á undan. „Ef þær eru tímanlega þá þarf þetta ekki að vera neitt stress og þær geta fengið hvaða kjól sem þær vilja,“ segir Ásdís.

Mátunin virkar þannig að brúðurin prófar sýnishornakjóla í ýmsum stærðum. „Við vinnum með alls konar teygjur og trikk til að láta þá virka þó þeir séu ekki í réttum stærðum. Svo er kjóllinn hennar pantaður í …














Athugasemdir