Elva Sóley Schulin hefur unnið í blómabúðinni Dögg í fjögur ár. Þar er meðal annars boðið upp á brúðarvendi, brúðarmeyjuvendi, barmblóm, höfuðkransa og borðskreytingar.

Hvítt og tröllatré
Fyrsta skrefið þegar ákveða á brúðarvönd er að hafa samband við blómabúð og greina frá óskum sínum. „Svo förum við í gegnum hvaða litasamsetningu þau [tilvonandi brúðhjón] eru að pæla í og hvort að þau séu með einhver sérstök blóm í huga,“ segir Elva Sóley. „Við biðjum fólk reglulega að senda okkur hugmyndir á Pinterest þannig að við sjáum hvaða væb er í gangi. Við vinnum svo út frá því.“

Spurð hvaða brúðarvöndur hún haldi að verði vinsæll í sumar svarar Elva Sóley: „Ég held að það verði rosalega mikið af hvítu og tröllatré (e. eucalyptus).“ Skandinavíski stíllinn er ráðandi um þessar mundir en „inn á milli gerum við extra litríka vendi, bleika, appelsínugula …












Athugasemdir