Mynd: Aðsend

Best að panta vöndinn tímanlega

Það er að ýmsu að huga þegar kemur að brúð­ar­vend­inum. Ákveða þarf lögun hans, sam­setn­ingu blóma og finna rétta stærð. Elva Sóley hefur unnið hjá Dögg blóma­búð síð­ustu ár og hvetur fólk til að panta vend­ina tím­an­lega, sér í lagi á sumrin.

Elva Sóley Schulin hefur unnið í blóma­búð­inni Dögg í fjögur ár. Þar er meðal ann­ars boðið upp á brúð­ar­vendi, brúð­ar­meyju­vendi, barm­blóm, höf­uð­kransa og borð­skreyt­ingar.

Hvítt og tröllatré

Fyrsta skrefið þegar ákveða á brúð­ar­vönd er að hafa sam­band við blóma­búð og greina frá óskum sínum. „Svo förum við í gegnum hvaða lita­sam­setn­ingu þau [til­von­andi brúð­hjón] eru að pæla í og hvort að þau séu með ein­hver sér­stök blóm í huga,“ segir Elva Sóley. „Við biðjum fólk reglu­lega að senda okkur hug­myndir á Pinter­est þannig að við sjáum hvaða væb er í gangi. Við vinnum svo út frá því.“

Spurð hvaða brúð­ar­vöndur hún haldi að verði vin­sæll í sumar svarar Elva Sóley: „Ég held að það verði rosa­lega mikið af hvítu og trölla­tré (e. eucalyptus).“ Skand­in­av­íski stíll­inn er ráð­andi um þessar mundir en „inn á milli gerum við extra lit­ríka vendi, bleika, app­el­sínugula …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár