Mynd: Kristín María Jónsdóttir

Ólýsanlegt að gefa fólk saman

Bjarni Snæ­björns­son hefur gefið á annað hund­rað hjón saman. Hann segir það magnað að verða vitni að kær­leik­anum og ham­ingj­unni sem pör upp­lifa í kringum gift­ing­arnar.

Það eru tæp fimmtán ár síðan Bjarni Snæ­björns­son skráði sig úr Þjóð­kirkj­unni. „Ég var mjög ósáttur við marga hluti sem voru í gangi þar, sér­stak­lega hvað varðar hjóna­bönd sam­kyn­hneigðra. Ég var að leita að trú- eða lífs­skoð­un­ar­fé­lagi sem ég gæti tengt mig við. Þá fann ég Siðmennt.“

Það vildi svo til að Siðmennt var að leita að athafna­stjórum og Bjarna fannst starfið eiga vel við sig. Hann er mennt­aður leik­ari með meistara­gráðu í list­kennslu­fræðum og hefur auk þess lokið BA-prófi í ensku.

Bjarni lýsir Siðmennt sem fal­legum og mik­il­vægum hópi sem kemur saman í húmanískum kær­leiks­gildum. Starf athafna­stjóra veitir honum mikla gleði. „Það er eig­in­lega alveg ólýs­an­legt að ég hlakki alltaf til þegar nýtt par hefur sam­band,“ segir Bjarni. „Ég hlakka til að eiga fundi, kynn­ast og búa til kær­leiks- og gleði­stemn­ingu. Það verður aldrei gam­alt.“

Stóri dagurinn

Fyrsta gift­ingin er honum eft­ir­minni­leg. Bjarni gaf tvo …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár