Herbergið heldur vel utan um mig

Katla María Ómars­dóttir fermist í Vídalíns­kirkju þann 30. mars næst­kom­andi. Veislan verður haldin í Höf­uð­stöð­inni sem er mjög lit­ríkur og skemmti­legur staður og seg­ist hún vera mjög spennt fyrir ferm­ing­unni en hún er búin að velja sér kjól frá Yeoman og hvíta striga­skó við.

Herbergið heldur vel utan um mig

Katla María Ómars­dóttir er mjög ánægð með her­bergið sitt, hún lærir þar oft­ast, er með vin­konum þar og seg­ist eiga sínar bestu stundir í her­berg­inu. Hún segir að her­bergið haldi mjög vel utan um sig, enda er það afar hlý­legt og fal­legt, og að hún hafi valið sjálf margt í það. Mik­il­væg­asti hlut­ur­inn í her­berg­inu sé rúmið.

Katla María er list­feng stelpa og er með ýmiss konar liti inni í her­berg­inu, er mikið í leik­list, seg­ist elska það. Ann­að­hvort langar hana að verða leik­kona eða barna­sál­fræð­ingur og aðstoða börn sem eiga erfitt og þurfa á hjálp að halda. Hún æfir hand­bolta auk þess sem hún lærði ball­ett lengi sem barn. Best finnst henni þó að vera með vin­konum sínum og fjöl­skyldu.

Hvað er það besta við her­bergið þitt?

„Ég elska skrif­borðið mitt. Það heldur vel utan um mig og svo er svona speg­ill með …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár