Katla María Ómarsdóttir er mjög ánægð með herbergið sitt, hún lærir þar oftast, er með vinkonum þar og segist eiga sínar bestu stundir í herberginu. Hún segir að herbergið haldi mjög vel utan um sig, enda er það afar hlýlegt og fallegt, og að hún hafi valið sjálf margt í það. Mikilvægasti hluturinn í herberginu sé rúmið.
Katla María er listfeng stelpa og er með ýmiss konar liti inni í herberginu, er mikið í leiklist, segist elska það. Annaðhvort langar hana að verða leikkona eða barnasálfræðingur og aðstoða börn sem eiga erfitt og þurfa á hjálp að halda. Hún æfir handbolta auk þess sem hún lærði ballett lengi sem barn. Best finnst henni þó að vera með vinkonum sínum og fjölskyldu.

Hvað er það besta við herbergið þitt?
„Ég elska skrifborðið mitt. Það heldur vel utan um mig og svo er svona spegill með …














Athugasemdir