Það er sólríkur sumardagur í Borgarnesi. Brúðkaupsgestir í sínu fínasta pússi ganga að Borgarnesskirkju og ræða glaðlega saman. Eftirvæntingin í loftinu er áþreifanleg. Eftir stutta stund munu Íris og Davíð ganga í hjónaband, tólf árum eftir fyrstu kynni.
Í kirkjunni eru síðustu gestirnir að setjast niður. Allt í einu þagnar kliðurinn og tónlistin byrjar. Öll augu beinast að Davíð. Hann er staðsettur við altarið, klæddur í dökkblá jakkaföt og lítur brosandi í átt að kirkjudyrunum um leið og þær opnast. Gestirnir snúa sér í sætunum til þess að sjá dætur brúðhjónanna ganga inn kirkjugólfið. Nokkrum skrefum á eftir er Íris ásamt föður sínum, Gunnari.

Íris er í gólfsíðum hvítum kjól sem er vafinn um hana miðja en opinn niður í bringu. Hárið er bundið í hnút …












Athugasemdir