„Dagur drauma minna“

Íris Gunn­ars­dóttir og Davíð Ásgeirs­son gift­ust þann 22. júlí 2023. Bæði athöfnin og veislan fóru fram í Borg­ar­nesi, heimabæ hjón­anna. Íris segir frá und­ir­bún­ings­ferl­inu sem hún „dýrk­aði“ og deilir góðum ráðum fyrir þau sem eru að und­ir­búa brúð­kaup.

„Dagur drauma minna“

Það er sól­ríkur sum­ar­dagur í Borg­ar­nesi. Brúð­kaups­gestir í sínu fín­asta pússi ganga að Borg­ar­ness­kirkju og ræða glað­lega saman. Eft­ir­vænt­ingin í loft­inu er áþreif­an­leg. Eftir stutta stund munu Íris og Davíð ganga í hjóna­band, tólf árum eftir fyrstu kynni.

Í kirkj­unni eru síð­ustu gest­irnir að setj­ast niður. Allt í einu þagnar klið­ur­inn og tón­listin byrjar. Öll augu bein­ast að Davíð. Hann er stað­settur við alt­arið, klæddur í dökk­blá jakka­föt og lítur bros­andi í átt að kirkju­dyr­unum um leið og þær opn­ast. Gest­irnir snúa sér í sæt­unum til þess að sjá dætur brúð­hjón­anna ganga inn kirkju­gólfið. Nokkrum skrefum á eftir er Íris ásamt föður sínum, Gunnari.

Ganga inn kirkju­gólfiðDætur Írisar, þær Tara, Elma og Lea Mjöll ganga á undan móður sinni inn kirkju­gólfið.

Íris er í gólf­síðum hvítum kjól sem er vaf­inn um hana miðja en opinn niður í bringu. Hárið er bundið í hnút …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár