Benjamínfíkus

Heim­il­is­plantan Benja­mín­fíkus eða Ficus Benja­mina, eins og hún heitir á lat­ínu, er bæði fal­leg og góð til að hafa á nútíma­heim­ilum.

Benjamínfíkus

Benja­mín­fíkus er sterk planta og þrífst vel ef rétt er hugsað um hana. Hún á að hafa góð áhrif á hljóð­ein­angrun en mörg heim­ili eru með opin stór aðal­rými, jafn­vel hátt til lofts og því nokkuð ber­skjölduð fyrir hljóði sem berst vel. Benja­mín­fíkus á einnig að hafa góð áhrif á loft­gæði eins og reyndar heim­il­is­plöntur almennt.

Benja­mín­fíkus er upp­runnin í Suður-, Suð­austur-Asíu og Ástralíu. Hann dafnar á Flórída og í Arisóna í Norður-Ameríku. Í nátt­úru­legu umhverfi sínu getur tréð orðið allt að 30 metra hátt. Benja­mín­fíkus er fal­leg planta, greinar hennar eru langar og slút­andi, blöðin spor­öskju­laga og fag­ur­græn með örlitlum gljáa en börk­ur­inn ljós­brúnn.

Nokkur afbrigði eru til af Ficus Benja­mina, en plantan er einnig þekkt sem grát­fíkja, ficus-tré, eða bara sem fikus og er teg­und af blóm­strandi plöntu af móberja­ætt (Moraceae). Benja­mín­fíkus er þjóð­ar­blóm í Taílandi og plantan sögð hreinsa burt illa anda.

Góð …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár