Elsu Waage líður vel innan um munina, þeir geyma sögu fjölskyldu hennar en hún segir að heimilið eigi ekki að vera sýningarstaður fyrir aðra. Á meðal muna úr tengdafjölskyldu hennar er prótótýpa af fyrsta stiganum sem var opnanlegur og gat staðið einn og sér, stigann sem við þekkjum öll í dag en höfum líklega ekki leitt hugann að hversu mikil nýjung var á sínum tíma. Stiginn veitti mikið öryggi og hagræðingu.
Frá hverjum er þessi prótótýpa af stiganum?
„Hann er frá langafa dóttur minnar sem var frá Mílanó. Ég held að óhætt sé að segja að hann hafi verið sá fyrsti sem hannaði stiga sem var opnanlegur og hægt var að draga í sundur þannig að það þurfti ekki lengur stiga sem var hallað upp að vegg. Stiginn veitti því meira öryggi. Þessi stigi var keyptur af öllum þeim sem voru efnameiri og grein birtist í blaðinu Corriera …












Athugasemdir