Veislur í heimahúsi

Tanja Líf Trausta­dóttir rekur fyr­ir­tækið AT veislu­þjón­usta ásamt manni sínum, Arnari Inga Kristen­sen mat­reiðslu­meist­ara. Þau sér­hæfa sig í veislum sem haldnar eru í heima­húsum. Tanja Líf lumar á góðum ráðum fyrir öll þau sem ætla að halda veislu á næst­unni.

Veislur í heimahúsi
Veislu­borð Tanja Líf segir upp­setn­ingu veit­inga, sér­þarfir gesta og merk­ingar skipta máli þegar kemur að veislu­haldi. Mynd: AT veisluþjónusta

„Til að gera fram­úr­skar­andi veislu, hvort sem um er að ræða litla veislu eða stærri veislu, þá þarf að vanda valið á veit­ing­unum mjög vel,“ segir Tanja Líf.

Mik­il­vægt er að gestir upp­lifi að hugsað sé til þeirra í und­ir­bún­ingi og að eitt­hvað standi öllum til boða. „Það þarf að passa að hafa eitt­hvað fyrir börnin, en líka að hafa þetta ekki of barn­vænt þannig að veit­ing­arnar séu bara pizza marga­rita.“

„Það er ekk­ert súr­ara en að vera vegan eða græn­metisæta og geta ekki borðað neitt í veisl­unni“

Auk þess er gott að vera með á hreinu hvort ein­hverjir gestir séu með sér­þarfir þegar kemur að mat. „Það þarf að taka það inn í reikn­ing­inn. Það er ekk­ert súr­ara en að vera vegan eða græn­metisæta og geta ekki borðað neitt í veisl­unni.“

Tanja Líf segir AT veislu­þjón­ustu geta mætt sér­þörfum allra enda bjóði þau upp á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár