Fáar dýrategundir eru jafn mismunandi innbyrðis í útliti og eiginleikum og hundar. Þeir eru í öllum stærðum, litum og gerðum og það eru til rúmlega 300 mismunandi hundategundir í heiminum. Þegar horft er á Chihuahua og Stóra Dan standa hlið við hlið er eiginlega hálf ótrúlegt að þeir tilheyri sömu dýrategund. Þessi ólíkindi meðal hunda hafa ekki einungis orsakast af náttúrunnar hendi heldur höfum við, mannfólkið, gegnt lykilhlutverki í mótun allra þeirra tegunda af hundum sem til eru í dag.
Oft er talað um hunda sem besta vin mannsins, en þeir eru taldir vera fyrsta dýrið sem fór að lifa í nánu samneyti við fólk fyrir um 30 þúsund árum. Í gegnum tíðina hafa hundar gegnt hinum ýmsu hlutverkum fyrir okkur, hvort sem það er veiði, smölun, varðgæsla eða leit en í nútímanum eru flestir hundar fyrst og fremst selskapsdýr. Það er því ýmislegt sem þarf að huga að …












Athugasemdir