Ísland er best í heimi á mörgum sviðum. Til að mynda má finna eina dýrustu matarkörfu heims hér á landi og því er ekki óskynsamlegt að gera sem mest úr þeim mat sem við eigum til heima. Við fengum góð ráð hjá vel völdum aðila um það hvernig hægt er að nýta matinn okkar sem best: Pétur Jónsson er kvikmyndatónskáld og hljóðhönnuður sem hefur kallað sig snögghærðu eldabuskuna á Twitter. Þar deilir hann myndum og sögum af ljúffengum mat undir nafninu @senordonpedro. Fyrir honum er eldamennska og það að njóta matar með fjölskyldu og vinum besta leiðin til þess að lifa í núinu.
Áhuginn kviknaði á Ítalíu
Þegar Pétur var 18 ára flutti hann til Ítalíu, en áður hafði hann unnið á veitingastöðum við uppvask og önnur tilfallandi verkefni og hafði þar fengið að fylgjast með kokkum að störfum. Um búsetuna á Ítalíu segir Pétur: „Það er ekkert …












Athugasemdir