Mynd: Golli

Spornað við matarsóun

Hugtakið mat­ar­sóun hefur verið nokkuð mikið í umræð­unni síð­ustu miss­eri, sér í lagi í sam­hengi við lofts­lags­mál. Það er ýmis­legt hægt að gera til þess að nýta mat­inn sem best á lysti­legan máta. Vel skipu­lögð mat­ar­inn­kaup og gott ímynd­un­ar­afl er lyk­il­at­riði.

Ísland er best í heimi á mörgum sviðum. Til að mynda má finna eina dýr­ustu mat­ar­körfu heims hér á landi og því er ekki óskyn­sam­legt að gera sem mest úr þeim mat sem við eigum til heima. Við fengum góð ráð hjá vel völdum aðila um það hvernig hægt er að nýta mat­inn okkar sem best: Pétur Jónsson er kvik­mynda­tón­skáld og hljóð­hönn­uður sem hefur kallað sig snögg­hærðu elda­busk­una á Twitter. Þar deilir hann myndum og sögum af ljúf­fengum mat undir nafn­inu @senordonpedro. Fyrir honum er elda­mennska og það að njóta matar með fjöl­skyldu og vinum besta leiðin til þess að lifa í núinu.

Áhuginn kviknaði á Ítalíu

Þegar Pétur var 18 ára flutti hann til Ítalíu, en áður hafði hann unnið á veit­inga­stöðum við upp­vask og önnur til­fallandi verk­efni og hafði þar fengið að fylgj­ast með kokkum að störfum. Um búset­una á Ítalíu segir Pétur: „Það er ekk­ert …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár