Mynd: Golli

Með mikla ástríðu fyrir myndlist

Mynd­list­ar­á­hugi Vil­hjálms Bjarna­sonar, fyrr­ver­andi alþing­is­manns, kvikn­aði snemma, eða þegar hann fékk bók um mynd­list Gunn­laugs Blöndal í ferm­ing­ar­gjöf, og hefur verið óslökkvandi síðan. Hann er ástríðusafn­ari og á verk eftir bæði okkar þekkt­ustu og virt­ustu mál­ara, sem og aðra minna þekkta.

Vil­hjálmur sýndi okkur vegg á heim­ili sínu sem er þak­inn fal­legri og merki­legri mynd­list, m.a. af upp­á­halds­fjall­inu Snæ­fellsjökli sem hann segir fremur vera okkar borg­ar­fjall en Esjuna.

Þú ætlar að segja mér frá þessum aðal­vegg í stof­unni þó að það sé kannski eng­inn aðal­veggur að mér sýn­ist. „Það er eng­inn aðal­veggur í stof­unni, maður á aldrei að mis­muna börn­unum sínum,“ segir Vil­hjálmur glett­inn. „Ég fékk mik­inn áhuga á mynd­list þegar ég fermd­ist en þá fékk ég lista­verka­bók um Gunnlaug Blöndal. Ég byrj­aði reyndar að vinna fyrir launum næsta dag en ég reikn­aði nú aldrei með því að ég gæti eign­ast almenni­lega mynd eftir Gunnlaug Blöndal. Þessar tvær myndir sem hér eru komu upp í hend­urnar á mér þannig að mér voru boðnar þær til kaups en þá var lið­inn tölu­verður tími frá ferm­ing­unni, ein 15 ár, þar til ég eign­að­ist stærri mynd­ina, sem heitir Stúlka á Siglu­firði, og 40 …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár