Einfaldasti kjúklingarétturinn

Þessi réttur er svo ein­faldur í eldun, mætti nán­ast segja að hann eldi sig sjálfur.

Einfaldasti kjúklingarétturinn
  • 1 msk. olía
  • 3–4 kjúklinga­bringur 750 g
  • 2–3 hvít­lauks­rif
  • 100 g sól­þurrk­aðir tómatar 10–12 stk.
  • 360 g risotto hrís­grjón
  • 900 ml kjúklinga­soð eða vatn og 2 kjúklinga­ten­ingar
  • 200 ml mat­reiðsl­urjómi
  • 1 tsk. salt, pipar, hvít­laukskrydd, papriku­krydd og timían
  • fersk basi­líka skorin niður og sett yfir hvern disk
  • parmesan-ostur yfir rétt­inn

Byrjaðu á því að skera kjúkling­inn í bita, steikja upp úr olí­unni og steikja hann í gegn. Kjúkling­ur­inn er krydd­aður með salti, pipar, hvít­lauk og timían. Skerðu sól­þurrk­uðu tómatana í bita ásamt hvít­lauknum, bættu þessu tvennu út á pönn­una og steiktu áfram í um 2 mín­útur.

Helga Magga nær­ing­ar­þjálf­ari.

Hrís­grjón­unum er svo bætt út á pönn­una ásamt kjúklinga­soð­inu. Blandaðu þessu saman, settu lok á og láttu þetta malla á miðl­ungs hita í um 20 mín­útur. Gott að hræra einu sinni í þessu eftir um 10 mín­útur. Þegar 20 mín­útur eru liðnar ættu hrís­grjónin að vera …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár