Fær þig til að hugsa hvað lífið hefur breyst á skömmum tíma

Kristín Hildur Ragn­ars­dóttir fjár­mála­hag­fræð­ingur erfði útsaum­aðan rókokkóstól frá föð­ur­ömmu sinni sem hún heitir í höf­uðið á. Stóllinn er ekki bara fal­legur minja­gripur heldur situr Kristín gjarnan í stólnum og tengir hann við fyrri kyn­slóðir og hand­verk sem sjaldan sést í dag.

Fær þig til að hugsa hvað lífið hefur breyst á skömmum tíma

„Stóllinn er frá ömmu minni, Sig­ur­laugu Kristínu Jóhanns­dóttur, sem ég heiti í höf­uðið á.“

Hvenær fékkstu þennan stól?

„Ég fékk hann þegar verið var að fara í gegnum dán­ar­búið. Þar voru ýmsir fal­legir munir, sumir fóru til barna­barna, og ég fékk þennan stól.“

Hvaða þýð­ingu hefur hann fyrir þig?

„Ég man vel eftir þessum stól hjá ömmu, og það hefur mikla þýð­ingu fyrir mig að hafa hann á heim­il­inu þar sem margt kemur til dæmis úr Ikea. Þegar ég komst að því að áklæðið væri útsaumur eftir ömmu fannst mér stóll­inn enn dýr­mæt­ari. Þó að prjóna­skapur sé enn iðk­aður af fullum krafti sér maður sjaldan svona útsaumað áklæði lengur. Amma saum­aði áklæðið þegar pabbi var lít­ill og hann man eftir því að hún greip í saumana á nokk­urra ára tíma­bili. Áður hafði hún einnig saumað áklæði á píanó­bekk, sem nú er hjá systur minni, og síðan …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár