Nú er tími til að fá sér heimilisplöntu, en mörgum finnst svolítið tómlegt eftir jólin þegar ljósin og skrautið sem fylgir þeim er farið. Blómabúðirnar fyllast af heimilisplöntum, oft á tilboðum, og þær prýða heimilin. Sómakólfur, eða Zamiouculcas zamiifolia eins og plantan heitir á latínu, er ein af þeim heimilisplöntum sem hafa notið vinsælda undanfarið og ekki að ástæðulausu. Sómakólfurinn er falleg og smart planta sem auðvelt er að koma fyrir nánast hvar sem er, m.a. í hornum, á skenk og það er langt í frá vandmeðfarið að láta hana þrífast vel. Eins og inniplöntur gera þá tekur sómakólfurinn óæskileg efni úr andrúmsloftinu og hreinsar það.
Uppruni
Sómakólfur er af svokallaðri Araceae-ætt og á uppruna sinn í Austur-Afríku, meðal annars finnst plantan í Malaví, Kenía, Mósambík, Simbabve og Tansaníu og nær útbreiðsla sómakólfsins allt til norðurhluta Suður-Afríku. Plantan er þekkt undir fleiri nöfnum eins og Zansibar-gimsteinn, eilífðarjurt, smaragðspálmi …














Athugasemdir