Sómakólfur er harðgerð og flott heimilisplanta

Plantan er sígræn og þrífst vel í heima­húsi við hálf­birtu og skugga en ætti ekki að vera í mik­illi sól.

Sómakólfur er harðgerð og flott heimilisplanta

Nú er tími til að fá sér heim­il­is­plöntu, en mörgum finnst svo­lítið tóm­legt eftir jólin þegar ljósin og skrautið sem fylgir þeim er farið. Blóma­búð­irnar fyll­ast af heim­il­is­plöntum, oft á til­boðum, og þær prýða heim­ilin. Sóma­kólfur, eða Zamiouculcas zamiifolia eins og plantan heitir á lat­ínu, er ein af þeim heim­il­is­plöntum sem hafa notið vin­sælda und­an­farið og ekki að ástæðu­lausu. Sóma­kólf­ur­inn er fal­leg og smart planta sem auð­velt er að koma fyrir nán­ast hvar sem er, m.a. í hornum, á skenk og það er langt í frá vand­með­farið að láta hana þríf­ast vel. Eins og inni­plöntur gera þá tekur sóma­kólf­ur­inn óæski­leg efni úr and­rúms­loft­inu og hreinsar það.

Uppruni

Sóma­kólfur er af svo­kall­aðri Araceae-ætt og á upp­runa sinn í Austur-Afríku, meðal ann­ars finnst plantan í Malaví, Kenía, Mósambík, Simbabve og Tansaníu og nær útbreiðsla sóma­k­ólfs­ins allt til norð­ur­hluta Suður-Afríku. Plantan er þekkt undir fleiri nöfnum eins og Zansibar-gim­steinn, eilífð­ar­jurt, smar­agð­spálmi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár