Þessu máttu ekki missa af í París í desember

Ef þið eruð á leið­inni til Parísar yfir aðvent­una þá eru þar nokkrir staðir sem eng­inn ætti að láta fram hjá sér fara.

Þessu máttu ekki missa af í París í desember

Það er eitt­hvað ein­stakt við jólin í París og alltaf jafn­heill­andi upp­lifun að labba um hverfin. Hvert horn borg­ar­innar er fal­lega skreytt og töfra­ljómi yfir borg­inni, það minnir mann á að njóta augna­bliks­ins og sam­ver­unnar. Ljósa­borgin er umvafin glitr­andi skrauti, ilm­ur­inn af rist­uðum möndlum og heitu kakói svífur um göt­urnar.

Ljósin á Champs-Élysées

Þegar myrkrið skellur á þá er gaman að labba eftir allri breið­göt­unni, þús­undir ljósa­pera ljóma í trjánum eftir allri göt­unni. Þetta er hjarta jólastemn­ing­ar­innar í París, þar sem gaman er að njóta með sínu fólki.

Jólamarkaðurinn í Tuileries-garðinum

Þessi mark­aður er einn sá vin­sæl­asti í borg­inni. Hér bland­ast ilmur af heitu víni og nýbök­uðum crepes. Þar er margs konar hand­verk og jóla­skraut til sölu og einnig hægt að smakka ljúf­fengan franskan mat eins og raclette og galette.

Galeries Lafayette og Printemps

Versl­an­irnar á Boulevard Hauss­mann bjóða …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár