Ég var fimmtán ára þegar foreldrar mínir byggðu sér sumarhús við Meðalfellsvatn. Við tókum strax ástfóstri við staðinn og þetta varð okkar fjölskylduparadís. Við systkinin erum fjögur og tvö okkar ákváðum að byggja okkur hús hvort sínum megin við foreldra okkar. Börn okkar og barnabörn elska staðinn þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi. Vatnið, fjöllin og fossar eru alltaf aðdráttarafl. Ég notaði fossinn sem sturtu á mínum unglingsárum og mínir afkomendur elska ískaldan fossinn. Vatnið er spennandi og alltaf einhver veiði, dóttir okkar veiddi maríulaxinn sinn níu ára í Meðalfellsvatni.
Hvernig myndirðu lýsa stílnum á bústaðnum?
Ég er með mjög blandaðan stíl, vil hafa hvítt og dökkt sem er eiginlega blanda af skandinavískum stíl og frönskum sveitastíl. Ég hef fundið tvær verslanir hér á landi sem ég hef verslað mikið við í gegnum árin. Eitt af mínum aðaláhugamálum er að fara á nytjamarkaði erlendis og ég …














Athugasemdir