Lestir gerðu sumarleyfi í Normandí aðgengilegri fyrir almenning

Normandí er vin­sæll sum­ar­leyf­is­staður í Frakk­landi. En svæðið hefur ekki alltaf verið aðgengi­legt fyrir almenn­ing. Það breytt­ist með til­komu járn­braut­ar­lesta, sem á seinni hluta 19. aldar gjör­breytti lífs­stíl borg­ar­búa, sér­stak­lega Par­ís­ar­búa, með því að gera ferða­lög ein­fald­ari, hrað­ari og ódýr­ari. Með lest­ar­sam­göngum urðu sum­ar­bú­staðir aðgengi­legri og það gerði fólki mögu­legt að koma sér upp öðrum dval­ar­stað utan borg­ar­innar og hafði var­an­leg áhrif á búsetu­mynstur í Normandí.

Lestir gerðu sumarleyfi í Normandí aðgengilegri fyrir almenning

Normandí varð eitt af fyrstu svæð­unum í Frakk­landi þar sem strand­frí urðu vin­sæl, að hluta til vegna lækn­is­fræði­legra skoð­ana um heilsu­sam­leg áhrif sjáv­ar­lofts og að baða sig í köldu vatni, enda engin furða þar sem svæðið býður upp á fal­lega strand­lengju. Sveit­irnar og sögu­frægir bæirnir höfðu lengi laðað að sér Par­ís­ar­búa. Fyrir komu lest­ar­innar var Normandí dreif­býlt, til­tölu­lega ein­angrað og erfitt að kom­ast þangað og aðeins aðgengi­legt þeim allra rík­ustu sem áttu hest­vagn.

Ferðalög á þessum tíma voru hæg, dýr og óhentug fyrir stutta dvöl með hest­vögnum, bátum eða dýrum. Með bygg­ingu járn­brauta til Deauville, Trouville, Cabourg, Dieppe eða Étretat varð dvöl í Normandí mögu­leg fyrir milli­stétt­ar­hóp líka. Bæir byggðu göngu­stíga, spila­víti og bað­klefa. Járn­brautin flutti ekki aðeins ferða­menn heldur einnig verk­taka sem byggðu villur, gisti­heim­ili og síðar ein­býl­is­hús.

Ferð frá París til Deauville stytt­ist úr meira en 12 klst. með hest­vagni í innan við 4 klst. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár