Vinsælt er að eiga sumarbústað þar sem fólk getur verið umvafið náttúrunni, fjöllunum, átt góðar stundir með sínu fólki og verið oft í meiri afslöppun en heima hjá sér. Á árum áður voru sumarbústaðir minni, oftast viðarklæddir bústaðir, afskekkt athvarf til að hvílast og stunda áhugamál sín. Í dag gegna sumarbústaðir fjölbreyttara hlutverki sem stærri viðbót við heimilið og oft fylgir meiri fjölbreytni í hönnun og útliti.
Bohemian-stíllinn
Bohemian-stíllinn snýst um frjálslega sköpun. Vinsælt er að blanda saman litum, mynstrum og áferðum. Hægt er að sækja innblástur í ferðalög um heiminn og velja efni sem eru náttúruleg, eins og rattan, þannig verður meiri tenging við náttúruna eins og þessi stíll er þekktur fyrir. Yfirbragðið á stílnum er listrænt, rýmin oft notaleg og með sterkan karakter.


Franski sveitastíllinn
Franski sveitastíllinn er hlýlegur og aðlaðandi og einkennist af hlutlausum litum og náttúrulegum efnum eins …














Athugasemdir