Mismunandi stílar í sumarbústöðum

Elísabet Ómars­dóttir inn­an­húss­arki­tekt fer yfir þrjá mis­mun­andi stíla sem henta vel fyrir sum­ar­bú­stað og geta veitt inn­blástur ef breyt­ingar eru í bígerð. Hún segir áhuga­verða stíla mun fleiri, en mestu skipti að hafa hlý­legt í kringum sig og gera rýmið að sínu.

Mismunandi stílar í sumarbústöðum

Vinsælt er að eiga sum­ar­bú­stað þar sem fólk getur verið umvafið nátt­úr­unni, fjöll­unum, átt góðar stundir með sínu fólki og verið oft í meiri afslöppun en heima hjá sér. Á árum áður voru sum­ar­bú­staðir minni, oft­ast við­ar­klæddir bústaðir, afskekkt athvarf til að hvíl­ast og stunda áhuga­mál sín. Í dag gegna sum­ar­bú­staðir fjöl­breytt­ara hlut­verki sem stærri við­bót við heim­ilið og oft fylgir meiri fjöl­breytni í hönnun og útliti.

Bohemian-stíllinn

Bohemian-stíll­inn snýst um frjáls­lega sköpun. Vinsælt er að blanda saman litum, mynstrum og áferðum. Hægt er að sækja inn­blástur í ferða­lög um heim­inn og velja efni sem eru nátt­úru­leg, eins og rattan, þannig verður meiri teng­ing við nátt­úr­una eins og þessi stíll er þekktur fyrir. Yfir­bragðið á stílnum er list­rænt, rýmin oft nota­leg og með sterkan karakter.

Bohemian-stíll
Bohemian-stíll

Franski sveitastíllinn

Franski sveita­stíll­inn er hlý­legur og aðlað­andi og ein­kenn­ist af hlut­lausum litum og nátt­úru­legum efnum eins …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár