Slæmar tölur fyrir húsnæðislánin

Óvænt aukn­ing í verð­bólgu í júní hækkar verð­tryggðu lánin í ágúst.

Slæmar tölur fyrir húsnæðislánin
Frá Seyð­is­firði Fast­eigna­verð hefur hækkað langt umfram laun á síð­ustu þremur árum. Mynd: Shutterstock

Nýjar tölur yfir þróun vísi­tölu neyslu­verðs eru óvænt verri en búist var við. Vísi­talan hækk­aði um 0,84% í júní­mán­uði einum og sér, sem leiðir af sér að höf­uð­stóll verð­tryggðra fast­eigna­lána hækkar jafnt og þétt yfir ágúst­mánuð um sömu upp­hæð, aðfrá­dreg­inni afborgun sem veltur á lengd láns­tím­ans.

Sér­fræð­ingar Lands­bank­ans og Íslands­banka höfðu spáð hækkun upp á rúm­lega 0,5%.

Eins og Lands­bank­inn hefur bent á hefur kostn­aður við greiðslu hús­næð­is­lána hækkað langt umfram laun á síð­ustu þremur árum. Þróunin hefur verið óvenju­leg, eins og sjá má á með­fylgj­andi grafi.

Sér­fræð­ingar velta nú fyrir sér hversu lengi hækkun hús­næð­is­verðs getur staðið yfir, en búist er við að veru­lega hægi á henni.

Í júní hækk­aði hús­næð­is­kostn­aður í mæl­ingu Hag­stof­unnar á verð­bólgu um 0,7%. Útreikn­ing­ur­inn byggir á reikn­aðri húsa­leigu, sem aftur byggir meðal ann­ars á úrtaki húsa­leigu­samn­inga sem eru að 40% leyti verð­tryggðir. Þannig er ákveðin víxl­verkun í hækk­unum á verð­bólgu.

Hús­næð­is­verð lækk­aði í maí­mán­uði um 0,45%, fyrst og fremst vegna lækk­unar sér­býlis á höf­uð­borg­arvsæð­inu.

Þróun verð­bólgu hefur komið á óvart síð­ustu mán­uði og það ekki af góðu. Verð­bólgan, sem er breyt­ing vísi­tölu neyslu­verðs síð­ustu 12 mán­uði, er nú 4,2%. Á sama tíma hafa lána­kjör versnað. Verð­tryggðir vextir hafa hækkað tölu­vert og eru nú á bil­inu 4% til 5%, ef frá eru taldir líf­eyr­is­sjóðir sem bjóða frá 3,15%. Með því að leggja saman vext­ina og verð­bólgu fást því rúm­lega 8% nafn­vextir á verð­tryggðu lánin.

Óverð­tryggðir vextir fást lægstir 8,5% í breyti­legu, en með bind­ingu í þrjú ár 8,3% lægst hjá Arion banka, af bönk­unum, og svo með 5 ára bind­ingu 8% hjá Íslands­banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár