Í Mosfellsbæ er náttúran allt í kring í hverfinu þar sem hún býr í nútímalegu tveggja hæða raðhúsi. Lóðin fyrir framan húsið er ekki fullkláruð en þegar inn í húsið er komið tekur við litríkur ævintýraheimur.
Halldóra Sif klæðist fjólublárri buxnadrakt, hvítri skyrtu og ber fjólublátt bindi. Allt er þetta hönnun hennar. Hvítir skórnir eru frá íslenska merkinu Kalda.
Hún býður til sætis í stofunni á efri hæðinni.

Halldóra Sif ólst upp í Kópavogi fyrstu árin en flutti níu ára gömul í Mosfellsbæ. Áratugir liðu þar til byrjað var að byggja í hverfinu þar sem hún …












Athugasemdir