Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi segir að það mikilvægasta við fjármálahliðina þegar fólk hugar að fríi erlendis – og auðvitað líka innanlands – sé að passa upp á að fríið verði staðgreitt. Hann segist skilja að þegar fólk er komið út og það er gaman þá geti það aðeins farið fram úr sínu fjárhagslega svigrúmi og eytt kannski aðeins meiru en innistæða er fyrir, en það sé svo mjög erfitt að ætla síðan að vinda ofan af þeim lánum sem þyrfti að taka í kjölfarið.
„Það sem er því miður allt of algengt er að greiðslukortareikningurinn eftir fríið er ekki staðgreiddur strax eða næst þegar reikningurinn berst heldur fer fólk að dreifa greiðslunum. Þetta er því miður ekki bara allt of algengt heldur rándýrt. Þess vegna er besta leiðin að skrifa niður eins nákvæma útgjaldaáætlun og hægt er, jafnvel áður en hlutirnir eru bókaðir. Hversu dýrt má þetta frí verða? …














Athugasemdir