Mikilvægast að staðgreiða fríið

Ferðalag er fjár­hags­leg áskorun. Björn Berg Gunn­ars­son fjár­mála­ráð­gjafi segir að mik­il­væg­ast sé að stað­greiða fríið og nota reiðufé þegar út er komið þar sem fólk hefur þá betri yfir­sýn yfir útgjöldin.

Mikilvægast að staðgreiða fríið
Tenerife Horft yfir Las Ter­es­itas-strönd­ina í Tenerife. Mynd: Shutterstock

Björn Berg Gunn­ars­son fjár­mála­ráð­gjafi segir að það mik­il­væg­asta við fjár­mála­hlið­ina þegar fólk hugar að fríi erlendis – og auð­vitað líka inn­an­lands – sé að passa upp á að fríið verði stað­greitt. Hann seg­ist skilja að þegar fólk er komið út og það er gaman þá geti það aðeins farið fram úr sínu fjár­hags­lega svig­rúmi og eytt kannski aðeins meiru en inni­stæða er fyrir, en það sé svo mjög erfitt að ætla síðan að vinda ofan af þeim lánum sem þyrfti að taka í kjöl­farið.

„Það sem er því miður allt of algengt er að greiðslu­korta­reikn­ing­ur­inn eftir fríið er ekki stað­greiddur strax eða næst þegar reikn­ing­ur­inn berst heldur fer fólk að dreifa greiðsl­unum. Þetta er því miður ekki bara allt of algengt heldur rán­dýrt. Þess vegna er besta leiðin að skrifa niður eins nákvæma útgjalda­á­ætlun og hægt er, jafn­vel áður en hlut­irnir eru bók­aðir. Hversu dýrt má þetta frí verða? …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár