Ingrid Kuhlman, framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar, sem er með meistaragráðu í jákvæðri sálfræði, segir að það sé eitthvað heillandi við að láta hendurnar hverfa ofan í moldina.
„Það má segja að þegar við ræktum garðinn séum við jafnframt að rækta okkur sjálf. Rannsóknir í jákvæðri sálfræði sýna að tenging við náttúruna eykur vellíðan, stuðlar að jákvæðum tilfinningum og bætir lífsgæði. Garðyrkja sameinar marga af þeim þáttum sem jákvæð sálfræði kennir okkur að efli hamingju. Hún kallar á núvitund, tengir okkur við lífið í kringum okkur og veitir okkur tilfinningu fyrir tilgangi og árangri. Náttúrulegt umhverfi er ekki aðeins fagurt – það hefur djúpstæð áhrif á bæði líkama og sál.“
Ingrid nefnir fjögur atriði sem lýsa áhrifum garðvinnu. Í fyrsta lagi hefur hún áhrif á geðheilsu og vellíðan, í öðru lagi hefur hún áhrif á líkamlega heilsu, í þriðja lagi eru það félagsleg tengsl og tilgangur og í fjórða lagi er …














Athugasemdir