Lífsgæði að vera með gróðurhús

Á vet­urna fá við­kvæm tré og eðal­rós að vera í gróð­ur­húsi Svein­björns Ara Gunn­ars­sonar og fjöl­skyldu, en á vorin eru þar ræktuð sum­ar­blóm og græn­meti. Fjöl­skyldan nýtur sam­veru­stunda í gróð­ur­hús­inu, sem er mest notað frá miðjum mars og fram eftir hausti. Tjörn liggur inn í gróð­ur­húsið, þar sem fiskar synda inn og út.

Lífsgæði að vera með gróðurhús
Fiskatjörnin Svæði sem er eins og lista­verk í garð­inum. Gróð­ur­húsið og fiskatjörnin. Mynd: Golli

Svein­björn Ari Gunn­ars­son og eig­in­kona hans, Bryndís Erlings­dóttir, festu fyrir sex árum síðan kaup á fok­heldu ein­býl­is­húsi sem stendur á rúm­lega 900 fer­metra lóð. Svein­björn Ari er húsa­smiður og inn­rétt­aði húsið sjálfur. Þegar kom að lóð­inni var upp­haf­lega hug­myndin að vera með pall með heitum potti og gras þess utan.

„Svo fékk ég þá hug­mynd að það væri gaman að fram­lengja stof­una eða vera með úti­svæði þar sem væri hægt að njóta þess að vera. Fyrsta hug­myndin var því ekki endi­lega að rækta heldur að reyna að nýta garð­inn meira á vorin og haustin.“

Síðan fékk Svein­björn Ari hug­mynd um gróð­ur­hús í garð­inum, sem teng­ist áhuga hans á gróðri og var einnig ætlað að fram­lengja stof­una.

Hug­myndin varð að veru­leikaSvein­björn Ari Gunn­ars­son með gróð­ur­húsið í bak­sýn.

Fuglafæla með stíl

Hjónin skoð­uðu nokkur gróð­ur­hús og völdu 13,5 fer­metra gróð­ur­hús frá Lága­felli. Svein­björn Ari …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár