Sveinbjörn Ari Gunnarsson og eiginkona hans, Bryndís Erlingsdóttir, festu fyrir sex árum síðan kaup á fokheldu einbýlishúsi sem stendur á rúmlega 900 fermetra lóð. Sveinbjörn Ari er húsasmiður og innréttaði húsið sjálfur. Þegar kom að lóðinni var upphaflega hugmyndin að vera með pall með heitum potti og gras þess utan.
„Svo fékk ég þá hugmynd að það væri gaman að framlengja stofuna eða vera með útisvæði þar sem væri hægt að njóta þess að vera. Fyrsta hugmyndin var því ekki endilega að rækta heldur að reyna að nýta garðinn meira á vorin og haustin.“
Síðan fékk Sveinbjörn Ari hugmynd um gróðurhús í garðinum, sem tengist áhuga hans á gróðri og var einnig ætlað að framlengja stofuna.

Fuglafæla með stíl
Hjónin skoðuðu nokkur gróðurhús og völdu 13,5 fermetra gróðurhús frá Lágafelli. Sveinbjörn Ari …














Athugasemdir