Nú gætu óverðtryggðir vextir lækkað

Stýri­vextir Seðla­bank­ans hafa verið lækk­aðir um 0,25%. Síðan ekki sög­una meir.

Nú gætu óverðtryggðir vextir lækkað

Horfur eru á lækkun óverð­tryggðra vaxta í kjöl­far þess að pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands ákvað að lækka stýri­vexti um 0,25% í morgun. Þetta þýðir að stýri­vext­irnir fara úr 7,75% í 7,5%.

Ákvörð­unin er til­tölu­lega óvænt. Grein­inga­deildir Lands­bank­ans og Íslands­banka höfðu spáð því að vextir yrðu ekki lækk­aðir í dag, vegna hækk­unar á vísi­tölu neyslu­verðs í apríl, meðal ann­ars vegna stöðugrar hækk­unar á mat­væla­verði og hús­næð­is­kostn­aði.

Lík­leg­ast er að að vaxta­á­kvörðun Seðla­bank­ans hafi bein áhrif á hús­næð­is­lán með óverð­tryggðum, breyti­legum vöxtum. Þeir eru nú háir í sögu­legu til­liti. Hæstir eru þeir hjá Íslands­banka, 9,5%, af stóru lán­veit­end­unum, en 9,39% hjá Arion banka og 9,25% hjá Lands­bank­anum, þegar horft er til grunn­láns.

Bundnir óverð­tryggðir vextir hafa hins vegar breyst lítið að und­an­förnu, en þeir byggja á vænt­ingum á með­al­tals­vöxtum á tíma­bil­inu sem bind­ingin stendur yfir. Þannig býður Íslands­banki 8,45% fasta, óverð­tryggða vexti, Lands­bank­inn 8,55% og Arion banki 8,3%. Grein­inga­deild Arion banka hafði spáð vaxta­lækkun í dag.

Miðað við orð pen­inga­stefnu­nefndar má gera ráð fyrir því að ekki séu miklar vaxta­lækk­anir á næst­unni.

„Þótt verð­bólga hafi hjaðnað og verð­bólgu­vænt­ingar lækkað síð­ustu miss­eri er verð­bólgu­þrýst­ingur enn til staðar. Þær aðstæður hafa því ekki skap­ast að hægt sé að slaka á núver­andi raun­vaxta­að­haldi pen­inga­stefn­unnar. Ljóst er að frek­ari skref til lækk­unar vaxta eru háð því að verð­bólga fær­ist nær 2,5% mark­miði bank­ans,“ segir nefndin.

Næst ákveður Seðla­bank­inn stýri­vexti 20. ágúst.

Fyrir fólk með verð­tryggð lán eru horf­urnar hugs­an­lega lak­ari. Nú gerir Seðla­bank­inn ráð fyrir því að verð­bólga hald­ist „nálægt 4% út árið“. Hún muni hins vegar „hjaðna í mark­mið“, sem er 2,5%. Vextir á verð­tryggðu lánin hafa farið hækk­andi síð­ustu miss­erin og eru algengir breyti­legir vextir 5%. Lands­bank­inn býður þó 4% breyti­lega vexti. Á einu ári er því 4% verð­bólga ígildi þess að raun­vextir verð­tryggðra lána séu 8% til 9%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár