Verðtryggðu lánin hækka mikið í maí

Verð­bólgan tekur stökk.

Verðtryggðu lánin hækka mikið í maí
Meiri kostn­aður Hækkun vísi­tölu neyslu­verðs í apríl hefur áhrif á vaxtaum­hverfi og höf­uð­stól verð­tryggðra lána. Mynd: Shutterstock

Nýjar tölur Hag­stof­unnar sýna að verð­tryggðu hús­næð­is­lán lands­manna munu hækka um 0,93% í maí­mán­uði einum og sér.

Ástæðan er að hækkun flug­far­gjalda, mat­vöru og reikn­aðrar húsa­leigu hífir upp vísi­tölu neyslu­verðs, sem á að end­ur­spegla kostn­að­inn við fram­færslu á Íslandi.

Þannig hækk­uðu flug­far­gjöld um 20%, mat­vara um 0,8% og reiknuð húsa­leiga um 1,1%. Hækkun flug­far­gjalda er að hluta árs­tíð­ar­bundin.

Fyrir þau sem hafa verð­tryggð hús­næð­is­lán þýðir þetta að í maí­mán­uði hækkar höf­uð­stóll láns­ins um 0,93%, dreift yfir mán­uð­inn. Það þýðir að hækkun 20 millj­óna króna láns verður tæpar 200 þús­und krónur í mán­uð­inum, 40 millj­óna króna lán tæpar 400 þús­und krónur og 60 millj­óna króna lán tæpar 600 þús­und krónur.

Hækkun vísi­tölu neysl­ur­verðs í apríl er mun meiri en í apríl í fyrra, en þá var hún 0,55%. Á verð­bólgu­ár­inu 2023 hækk­aði vísi­talan hins vegar um 1,31%. Þetta er mesta hækkun vísi­töl­unnar frá febr­úar í fyrra.

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár