Leik- og tónlistarkonan Salka Sól Eyfeld Hjálmarsdóttir og rapparinn og viðskiptafræðingurinn Arnar Freyr Frostason eru búin að vera saman í áratug. Þau eru gift og eiga tvö börn, fimm ára gamla dóttur og þriggja ára gamlan son.
„Ég tók fyrst eftir honum sumarið 2015. Ég sá hann koma fram í Druslugöngunni og hugsaði með mér að mig langaði til að byrja með þessum gaur. Hljómsveitirnar okkar voru síðan bókaðar saman á Sjallanum lokadaginn um verslunarmannahelgina og þar byrjuðum við að tala saman og við höfum ekki hætt að tala saman síðan.“

Salka Sól vissi að hann væri rappari og áður en þau hittust hafði hún kynnt sér tónlistina hans. „Mér fannst hann vera svo áhugaverður, mér fannst hann skrifa svo flottan texta og mér fannst hann bara vera heillandi gaur. Það var svo fyndið þegar við kynntumst …












Athugasemdir