Að hanna barnaherbergi er skemmtilegt og skapandi ferli þar sem gaman er að leyfa ímyndunarafli og persónuleika barnsins að skína í gegn. Það fer auðvitað eftir aldri barnsins hvað hentar hverju sinni. Krakkarnir stækka hratt og tíminn flýgur áfram þannig gott er að hanna barnaherbergi með sveigjanleika í huga. Íhugaðu að notast við húsgögn sem auðvelt er að uppfæra með nýjum fylgihlutum eftir því sem áhugamál þeirra breytist.
- Gaman er að „brjóta“ upp rýmið með því að mála vegginn til dæmis til helminga og setja viðarlista á vegginn sem er málaður í sama lit og veggurinn. Svo er auðvitað hægt að vinna út frá einhverju þema sem er í uppáhaldi hjá barninu eins og risaeðlur, frumskóg, prinsessur eða stjörnur og geiminn.
- Veggfóður og mottur er líka alltaf góð hugmynd ef leitast er eftir meira punti inn í herbergið.
- Himnasæng, baunastóll eða tjald gerir herbergið enn huggulegra og fallegt að …














Athugasemdir