Bókasöfn gerast ekki mikið fallegri en Richelieu-bókasafnið í París. Það er eitt elsta og virtasta bókasafn borgarinnar. Einn lestrarsalurinn, Salle Ovale, er með 160 sæti og 20.000 bókum sem hægt er að skoða, þar af 9.000 teiknimyndasögum. Ef þú átt leið um París er svo sannarlega þess virði að heimsækja og dást að fegurð byggingarinnar og njóta þess að hvílast í friðsælu andrúmslofti. Bóka- og söguunnendur ættu að njóta þess sérstaklega að heimsækja safnið og fræðast um sögulegar safneignir þess.
Bókasafnið var stofnað á 14. öld og má rekja uppruna þess aftur til Karls V. Frakklandskonungs sem stofnaði konunglegt bókasafn í Louvre-höllinni árið 1368.
Staðurinn er nefndur eftir Richelieu, sem var lykilpersóna í franskri stjórnmála- og menningarsögu á 17. öld, því hann átti stóran þátt í vexti bókasafnsins.
Bókasafnið er staðsett í hjarta Parísar í 2. hverfi og er ríkt af sögu, sjaldgæfum handritum og menningararfi. Það …














Athugasemdir