Fjögur lykilatriði um húsnæðislán fyrir næstu mánuði

Verð­tryggðu lánin hækka um 0,37% í apríl. Næstu þrjá mán­uði munu þau lík­lega hækka meira.

Fjögur lykilatriði um húsnæðislán fyrir næstu mánuði
Reykja­vík­ur­borg Lánin eru að hækka en ein veig­ar­mesta ástæðan er að hús­næð­is­verðið hækkar. Mynd: Shutterstock

Raun­veru­legir vextir á nýlegu verð­tryggðu hús­næð­is­láni eru 8,5 til 9,5 pró­sent í mars­mán­uði, þegar tekið er til­lit til alls. Þetta má sjá út úr nýbirtum tölum um hækkun á vísi­tölu neyslu­verðs.

Þó svo að flestar fréttir séu undir jákvæðum for­merkjum vegna þess að árs­verð­bólgan mælist nú „aðeins“ 3,8%, segir það ekki alla sög­una þegar kemur að raun­veru­legum sam­an­burði á útkomu mis­mun­andi lána­forma.

Útlit er fyrir að verð­tryggðu lánin verði óhag­stæð næstu þrjá mán­uði, en þaðan af hag­stæð­ari.

1. Það er breyting vísitölu sem hækkar lánið

Í fyrsta lagi er rétt­ast að horfa til breyt­ingar á vísi­tölu neyslu­verðs, því það er hún sem hækkar hús­næð­is­lánið. Þar sem breyt­ing vísi­töl­unnar, sem birt var í dag, er 0,37%, hækkar höf­uð­stóll verð­tryggðra hús­næð­is­lána um þetta hlut­fall í apr­íl­mán­uði, dreift yfir daga mán­að­ar­ins. Þetta hlut­fall jafn­gildir 4,44% hækkun höf­uð­stóls­ins á árs­grund­velli.

2. Vextir plús hækkun er raunveruleikinn

Verð­tryggðir, breyti­legir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár