Raunverulegir vextir á nýlegu verðtryggðu húsnæðisláni eru 8,5 til 9,5 prósent í marsmánuði, þegar tekið er tillit til alls. Þetta má sjá út úr nýbirtum tölum um hækkun á vísitölu neysluverðs.
Þó svo að flestar fréttir séu undir jákvæðum formerkjum vegna þess að ársverðbólgan mælist nú „aðeins“ 3,8%, segir það ekki alla söguna þegar kemur að raunverulegum samanburði á útkomu mismunandi lánaforma.
Útlit er fyrir að verðtryggðu lánin verði óhagstæð næstu þrjá mánuði, en þaðan af hagstæðari.
1. Það er breyting vísitölu sem hækkar lánið
Í fyrsta lagi er réttast að horfa til breytingar á vísitölu neysluverðs, því það er hún sem hækkar húsnæðislánið. Þar sem breyting vísitölunnar, sem birt var í dag, er 0,37%, hækkar höfuðstóll verðtryggðra húsnæðislána um þetta hlutfall í aprílmánuði, dreift yfir daga mánaðarins. Þetta hlutfall jafngildir 4,44% hækkun höfuðstólsins á ársgrundvelli.
2. Vextir plús hækkun er raunveruleikinn
Verðtryggðir, breytilegir …














Athugasemdir