Taccia-lampinn – tímalaus meistarasmíð

Taccia-lamp­inn, fram­leiddur af ítalska fyr­ir­tæk­inu Flos síðan 1962, er eitt af helstu táknum síð­ustu aldar og um leið sígildrar hönn­unar.

Taccia-lampinn – tímalaus meistarasmíð

Hönnuðir Taccia-lampans eru ítölsku bræð­urnir Achille og Pier Giacomo Castiglioni, sem áttu stóran þátt í þróun hönn­unar á 20. öld. Lampann hönn­uðu þeir árið 1958. Með Taccia-lamp­anum leit­uð­ust þeir við að skapa ein­stakt lýs­ing­ar­tæki sem gæti veitt óbeina, still­an­lega birtu í rýmið, en hug­myndin var að snúa loftlampa á hvolf og stað­setja hann á borði eða gólfi.

Hönnunin tók þó nokkrum breyt­ingum í þró­un­ar­ferl­inu. Upp­haf­lega ætl­uðu bræð­urnir að nota plast­skál fyrir lampann, en hit­inn frá per­unni olli því að plastið afmynd­að­ist. Þeir leystu það með því að nota blásið Murano-gler, sem sett var á álsí­valn­ing og tryggði að hiti dreifð­ist rétt og ljósið kæmi mjúk­lega út í rýmið. Eitt af sér­kennum Taccia-lampans er að gler­hlífin er ekki föst við stöð­ina, sem gerir kleift að snúa henni og stýra ljósi í mis­mun­andi áttir.

Taccia er þekktur fyrir sína tíma­lausu fag­ur­fræði og sér­kenni. Lögun hans minnir á kast­ara, en …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár