Hönnuðir Taccia-lampans eru ítölsku bræðurnir Achille og Pier Giacomo Castiglioni, sem áttu stóran þátt í þróun hönnunar á 20. öld. Lampann hönnuðu þeir árið 1958. Með Taccia-lampanum leituðust þeir við að skapa einstakt lýsingartæki sem gæti veitt óbeina, stillanlega birtu í rýmið, en hugmyndin var að snúa loftlampa á hvolf og staðsetja hann á borði eða gólfi.
Hönnunin tók þó nokkrum breytingum í þróunarferlinu. Upphaflega ætluðu bræðurnir að nota plastskál fyrir lampann, en hitinn frá perunni olli því að plastið afmyndaðist. Þeir leystu það með því að nota blásið Murano-gler, sem sett var á álsívalning og tryggði að hiti dreifðist rétt og ljósið kæmi mjúklega út í rýmið. Eitt af sérkennum Taccia-lampans er að glerhlífin er ekki föst við stöðina, sem gerir kleift að snúa henni og stýra ljósi í mismunandi áttir.

Taccia er þekktur fyrir sína tímalausu fagurfræði og sérkenni. Lögun hans minnir á kastara, en …














Athugasemdir