Býr til góða stemningu en notaður sem krani

Sonja Björk Ragn­ars­dóttir inn­an­húss­arki­tekt deilir með okkur hvað er það dýr­mætasta sem hún á.

Býr til góða stemningu en notaður sem krani

Mér þykir óra vænt um marga hluti heim­il­is­ins, þeir koma úr svo mörgum og skemmti­legum áttum. Allt frá tyrk­neskri drykkj­ar­könnu yfir í spari­stell ömmu minnar heit­innar.

Til þess að hlutir á heim­il­inu fái að njóta sín þurfa þeir hlýja og fal­lega lýs­ingu. Einn af upp­á­halds­hlut­unum er lamp­inn 265 hann­aður af Paolo Rizzatto, 1973. Ég hef dálæti á góðri lýs­ingu sem gefur góða stemn­ingu og skemmti­lega fúnk­sjón. Paolo lýsti því best, hann sagði að lamp­inn væri ekki gólf, veggur eða hang­andi ljós heldur björt bein lýs­ing sem hreyf­ist um rýmið og lýsir upp þá hluti sem not­and­inn beinir ljós­inu að.

Á mínu heim­ili nýtum við hann í tvennum til­gangi, til að búa til góða stemn­ingu og til þess að lýsa upp ákveðna hluti í stof­unni. Strák­arnir mínir nota hann aðal­lega sem krana og vinnu­vél.

Sígild hönnunLampinn heitir 265 og er hann­aður af Paolo Rizzatto árið 1973.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár