Áhugaverðar og skapandi hugmyndir fyrir minni rými

Inn­an­húss­arki­tekt­inn Elísabet Ómars­dóttir sér víða í París sniðugar og fal­legar lausnir á heim­il­inu fyrir minni rými. Borgin er þétt og fer­metra­fjöld­inn tak­mark­aður og því er hver fer­metri oft vel nýttur.

Áhugaverðar og skapandi hugmyndir fyrir minni rými

Að hanna minni rými fylgja oft áskor­anir. Þó að heim­ili séu mun stærri á Íslandi en í París er ýmis­legt sem hægt er að nýta sér og gott er að hafa í huga þegar hanna á ný rými.

Ef við byrjum á inn­an­stokks­munum þá geta fjöl­nota hús­gögn þjónað alls konar til­gangi. Dæmi um það eru pullur eða bekkir. Þá er hægt að nota sem sæti og lítið geymslu­pláss. Stækk­an­leg, fell­an­leg borð eða svefn­sófar eru hús­gögn sem virka vel þegar maður vill spara pláss.

Það er mik­il­vægt að velja hús­gögn sem passa inn í rýmið og snjallt að forð­ast að velja stórar og fyr­ir­ferð­ar­miklar mublur sem þrengja að her­berg­inu. Það er góð hug­mynd að velja stí­hreina inn­an­stokks­muni sem einnig er auð­velt að færa til og henta mis­mun­andi þörfum.

Þegar kemur að því að velja skraut­muni og annað inn í rýmið þá er betra að velja frekar færri hluti …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár