Fimm húsráð: Haltu heimilinu, geðheilsunni og buddunni í lagi

Tugir þús­unda hafa horft á efni frá Brynju Liv Braga­dóttur á sam­fé­lags­miðlum þar sem hún deilir snið­ugum heim­il­is­ráðum. Hér eru fimm leiðir til að halda heim­il­inu, geð­heils­unni og budd­unni í lagi sam­kvæmt Brynju Liv.

Fimm húsráð: Haltu heimilinu, geðheilsunni og buddunni í lagi

Vikumatseðill

Með því að skipu­leggja mat­ar­inn­kaup fyrir vik­una, jafn­vel mán­uð­inn, minnkar þú útgjöldin tölu­vert. Reyndu að tak­marka búð­ar­ferðir við eina í viku og kauptu inn allt sem þarf sam­kvæmt viku­mat­seðl­inum. Þannig forðastu óþarfa kaup, nýtir mat­inn betur og sparar tíma.

Ofnahreinsun

Splæstu í Oven Pride frá Bónus og leyfðu hreinsi­efn­inu að vinna sína töfra á óhrein­indi bak­ara­ofns­ins. Þetta er betri leið en sjálf­hreins­andi ofn og kostar ekki mikið!

Taktu til eins og óvæntur gestur sé á leiðinni í heimsókn

Heimilið getur orðið ótrú­lega hreint á met­tíma þegar ein­hver hringir og segir „ég er á leið­inni!“ Notaðu þessa orku, jafn­vel þótt eng­inn sé á leið­inni í heim­sókn. Gríptu körfu, hentu öllu sem er ekki á sínum stað í hana, feldu hana og ekki gleyma að ryk­suga og þurrka af bara þar sem fólk sér!

Heimagert ediksprey

Ekki eyða pen­ingum í dýrar og óum­hverf­is­vænar hreinsi­vörur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimilisblaðið áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár