Fiskiðjan í Vestmannaeyjum var byggð um miðja 20. öld við Ægisgarð, rétt við höfnina í Eyjum, og um tíma var Fiskiðjan eitt af stærstu frystihúsum á landinu. Verbúð var á þaki hússins í áratugi sem samanstóð af 50 herbergjum. Baldur Ó. Svavarsson, arkitekt og einn eigenda teiknistofunnar Úti og inni, segir að það sé skemmtilegt hvernig fiskvinnsluhús voru skipulögð og hönnuð á árum áður sem hluti af bæjarskipulaginu og sem hluti af bæjarmyndinni. „Þetta gæti allt eins verið skrifstofuhús eða íbúðarhús en þegar fiskvinnsluhús eru byggð í dag þá eru oft byggðar einhverjar gluggalausar og leiðinlegar skemmur.“

Svo byrjaði að gjósa í Eyjum 23. janúar árið 1973 og húsið stóðst þá áraun. „Það er svo öflugt burðarvirki í húsinu af því að þetta var fiskvinnsluhús þar sem voru stórar og þungar vélar þannig að það er ótrúlega öflugt …














Athugasemdir